Skip to content
Logo
Keppnisforritunarfélag Íslands
Félag keppnisforritara á Íslandi
GitHubDiscordFacebook

Forritunarkeppni Háskólanna á Íslandi 2024

Forritunarkeppni Háskólanna á Íslandi, Keppnir

Atburðurinn

Forritunarkeppni Háskólanna á Íslandi var haldin í fyrsta sinn þann 14. september árið 2024. Hún var haldin í Háskólanum í Reykjavík í stofu M201. Þar gátu nemendur myndað allt að þriggja manna lið og reynt við forritunarverkefnin.

Samtals 13 lið skráðu sig í keppnina.

  • Nemendur úr Háskólanum í Reykjavík mynduðu 6 lið.
  • Nemendur úr Háskóla Íslands mynduðu 2 lið.
  • Einnig voru 5 lið aukalega.

Í keppninni reyndu liðin við 13 miserfið verkefni í 5 klukkustundir. Hvert verkefni sem lið leysti veitti þeim eitt stig og eina blöðru, en blöðrur eru gömul hefð í háskólakeppnum í forritun.

Í þriðja sæti var liðið Skordýr frá Háskólanum í Reykjavík sem leysti 5 verkefni. Meðlimir liðsins voru Bjartur Sigurjónsson, Einar Darri Sveinbjörnsson, Elías Hrafn Halldórsson. Þeir fengu 7,500 krónu gjafabréf í ELKO í verðlaun.

Skordyr
Frá vinstri: Einar Darri, Elías Hrafn, Bjartur

Í öðru sæti var liðið Hakk og Spaghetti frá Háskólanum í Reykjavík sem leysti 6 verkefni. Meðlimir liðsins voru Dagur Benjamínsson og Kristinn Vikar Jónsson. Þeir fengu 7,500 krónu gjafabréf í ELKO í verðlaun.

hakkogspaghetti
Frá vinstri: Dagur, Kristinn Vikar

Í fyrsta sæti var liðið Codebusters frá Háskóla Íslands sem leysti 9 verkefni. Meðlimir liðsins voru Benedikt Vilji Magnússon, Kári Hlynsson og Matthías Andri Hrafnkelsson. Þeir fengu 15,000 krónu gjafabréf í ELKO í verðlaun.

Codebusters
Frá vinstri: Kári, Matthías Andri, Benedikt Vilji

Næst á dagskrá er Norðurlandakeppnin NCPC sem verður haldin í Háskóla Íslands þann 5. október. Nánari upplýsingar um hana má finna hér.


Hlekkir


Viðurkenningar

Dómnefnd keppninnar skipuðu:

  • Arnar Bjarni Arnarson
  • Atli Fannar Franklín
  • Samúel Arnar Hafsteinsson
  • Unnar Freyr Erlendsson

Höfundar verkefnanna voru:

  • Arnar Bjarni Arnarson
  • Atli Fannar Franklín

Prófarar fyrir verkefnin:

  • Alexander Kravberg
  • Bernhard Linn Hilmarsson
  • David Rasmussen Lolck
  • Elias Lolck
  • Joseph Luo
  • Kelven Nathanael
  • Pikatan Arya Bramajati

Sérstakar þakkir:

  • Félag Tölvunarfræðinga, fyrir að veita verðlaunin
  • Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, fyrir að styrkja samstarf háskólanna í kringum ICPC keppnirnar
  • Háskólinn í Reykjavík, Háskóla Íslands og Háskólinn á Akureyri, fyrir samstarfið
  • Kattis, fyrir að hýsa keppnina í kerfinu sínu
  • Gunnlaugur Arnarson, fyrir aðstoð við undirbúning blaðranna og veitinganna
  • Heiðrún Gróa Bjarnadóttir, fyrir aðstoð við undirbúning blaðranna og veitinganna
  • Henning Úlfarsson, fyrir að vera tengiliður okkar í Háskólanum í Reykjavík
  • Ólafur Jónsson, fyrir að vera tengiliður okkar í Háskólanum á Akureyri
  • Steinn Guðmundsson, fyrir að vera tengiliður okkar í Háskóla Íslands
  • Örn Gunnlaugsson, fyrir aðstoð við undirbúning blaðranna og veitinganna