Aðalfundur 2026 - 2027
Við viljum tilkynna að aðalfundur Keppnisforritunarfélags Íslands verður haldinn 3. september 2026 kl. 18:00 – 21:00 í stofu M201 í Háskólanum í Reykjavík. Aðeins þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld seinasta árs (tímabil 2025-2026) hafa atkvæðisrétt. Á fundinum býður félagið öllum félagsmönnum upp á kvöldmat.
Leitast er eftir nýrri stjórn; 1 formaður, 2 meðstjórnendur og 3 varamenn. Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru beðnir um að senda póst á núverandi stjórn þar sem fram kemur nafn á frambjóðanda og þær stöður sem boðið er fram í. Einnig biðjum við um að tillögur að lagabreytingum og aðrar ábendingar berist á sama netfang. Frambjóðendur, tillögur að lagabreytingum og aðrar tillögur verða settar hér á vefsíðu félagsins eftir því sem þær berast.
Dagskrá
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar flutt.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnarmanna.
- Kosning skoðunarmanns reikninga.
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Kosning liðsstjóra og varaliðsstjóra Ólympíuliðs Íslands í forritun.
- Önnur mál:
- Starfsemi félagsins næsta ár.
- Aðrar tillögur.
Frambjóðendur
Formaður
Engin framboð hafa borist enn.
Meðstjórnendur
- Samúel Arnar Hafsteinsson
Varamenn
- Samúel Arnar Hafsteinsson
Skoðunarmaður reikninga
Engin framboð hafa borist enn.
Liðsstjóri
Engin framboð hafa borist enn.
Varaliðsstjóri
Engin framboð hafa borist enn.
Háskólakeppnissstjóri
Engin framboð hafa borist enn.
Tillögur að lagabreytingum
Engar tillögur hafa borist enn.
