Skip to content
Logo
Keppnisforritunarfélag Íslands
Félag keppnisforritara á Íslandi
GitHubDiscordLinkedInFacebook

ICPC Æfingar

Forritunarkeppni Háskólanna á Íslandi, NWERC, Keppnir

Íslenska

Keppnisforritunarfélag Íslands mun halda æfingar fyrir 2026 - 2027 ICPC (Alþjóðlega háskólakeppnin í forritun) tímabilið hvern einasta laugardag frá 29. ágúst til 21. nóvember kl. 10:00 - 15:00, með tveimur undantekningum. Mælt er með að miða á mætingu kl. 09:30. Klukkan 15:00 er svo farið yfir lausnir til að læra af verkefnunum sem manni tókst ekki að leysa. Æfingarnar verða í stofu M201 í Háskólanum í Reykjavík, en þó verður einnig hægt að taka þátt á netinu.

Keppnirnar fyrir íslenska nemendur á þessu tímabili eru Forritunarkeppni háskólanna á Íslandi (FKHÍ) sem verður haldin 12. september og Norðurlandakeppni háskólanna í forritun (NCPC) sem verður haldin 3. október. Því verða ekki æfingar á þessum tveimur dagsetningum, því þær keppnir eru á sama tíma og koma í staðinn fyrir æfingu. Þann 27.-29. nóvember munu valin lið frá háskólunum á Íslandi fara til Karlsruhe í Þýskalandi og keppa í Norðvestur Evrópu háskólakeppninni í forritun.

Frítt er að taka þátt í æfingum og mælt er með að reyna mynda þriggja nemenda hóp fyrir æfingar og keppnir. Einnig verður eitthvað af snarli og drykkjum í boði á æfingum.

Notast er við Kattis og verða æfingarnar oftast tvískiptar:

  • Verkefnasöfnin sem eru merkt A eru fyrir lengra komna
  • Verkefnasöfnin sem eru merkt B eru fyrir byrjendur

Markmið okkar er að íslenskur háskóli komist á Evrópsku meistarakeppnina (EUC).

Þetta er gott tækifæri fyrir háskólanemendur til að reyna á rökhugsun og æfa útfærslu og nýtingu reiknirita og gagnagrinda. Þar að auki eru mörg fyrirtæki sem bjóða störf til þeirra sem taka þátt í þessum keppnum.

English

The Competitive Programming Association of Iceland will have practice sessions for the 2026 - 2027 ICPC (International Collegiate Programming Contest) period on each Saturday from August 29 to November 21 at 10:00 - 15:00, with two exceptions. It is recommended to aim to show up at 09:30. At 15:00 we will cover solutions so students can learn from the problems they left unsolved. The practice sessions will be in room M201 in Reykjavík University, but it will also be possible to join online.

The contests for Icelandic students in this period are the Icelandic Collegiate Programming Contest (FKHÍ) on September 12 and the Nordic Collegiate Programming Contest on October 3. Therefore, there will be no practice sessions on those two dates as the contests replace them at a similar time. From November 27 to November 29, the universities in Iceland will send teams to Karlsruhe in Germany to compete in the Northwest Europe Regional Contest (NWERC) for ICPC.

It is free to attend the practice sessions and we recommend forming a group of three students for practicing and competing. We will also have some snacks and drinks during practice sessions.

We use Kattis and the practice sessions will be split in two:

  • Practice Sessions marked with A mean Advanced
  • Practice Sessions marked with B mean Beginner

Our goal is to have an Icelandic university reaching the ICPC Europe Championship (EUC).

This is a good opportunity for university students to put their reasoning to the test and practice the implementation and application of various algorithms and data structures. Additionally, there are many companies offering jobs to those which participate in these contests.