Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir 2026
— Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir, Keppnir
Keppnin IOI (International Olympiad in Informatics) 2026 var haldin 09. ágúst - 16. ágúst 2026 í Tashkent, Úsbekistan.
Í ár tóku þrír íslenskir framhaldsskólanema þátt í keppninni. Keppnisforritunarfélag Íslands hélt æfingar á hverjum þriðjudegi og laugardegi með keppendunum og fleiri nemum, þar sem æfingarnar eru opnar öllum þeim sem hafa áhuga.
Ferðalagið byrjaði í Svíþjóð, þar sem íslenska liðið tók þátt í æfingabúðum með öðrum norðurlöndum. Mikið fjör var í æfingabúðunum, þar sem keppendurnir okkar fengu að kynnast og taka æfingakeppnir saman með hinum þjóðunum.
Framhaldsskólanemarnir sem kepptu fyrir hönd Íslands voru:
- Eysteinn Daði Hjaltason, Verzlunarskóli Íslands
- Gunnsteinn Þór Ólason, Tækniskólinn
- Merkúr Máni Hermannsson, Menntaskólinn í Reykjavík
Samúel Arnar Hafsteinsson, liðsstjóri, og Kristinn Hrafn Daníelsson, aðstoðarliðsstjóri, fylgdu nemendunum á keppnina. Arnar Bjarni Arnarsson hitti liðið úti þar sem hann sat í alþjóðanefnd keppnarinnar.
Gunnsteinn Þór náði flestum stigum af íslensku keppendunum, 220.40 stig samtals og hlaut einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur þar sem hann var í efri hluta keppenda á keppnisdegi tvö. Eysteinn Daði fékk 141 og Merkúr Máni fékk 122 stig. Við erum ótrúlega stolt af frammistöðu keppanda okkar í ár og stefnum enn þá lengra á því næsta.
Keppendum var boðið í dýragarð í Tashkent, í bíó, og lokahóf á flugdrekahátíð í Samsarak þar sem mikið fjör var að finna.
Hlekkir:
